Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Anna Heiður Heiðarsdóttir
  • Staður: Selfoss
  • Atvinna: Þjónustufulltrúi hjá VÍS
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: Ég er fædd og uppalin á Selfossi en hef búið í og við Rvk síðan 1999. Við fjölskyldan erum ný flutt á Selfoss eftir að hafa búið í Mosfellsbæ í ca 3 ár og líkar okkur mjög vel hérna í gamla heimabæ mínum :) Við hefðum reyndar ekki flutt úr Mosó ef við hefðum getað keypt okkur stærra húsnæði þar.. Það er alveg yndislegt að búa í Mosó og hver veit nema maður flytji þangað aftur!
  • Annað: Við eigum eina yndislega prinsessu, hana Kolbrúnu Birnu. Hún kom í heiminn 12.september 2003. Hefði aldrei trúað því að ég ætti eftir að elskað eina manneskju jafn mikið eins og ég elska hana! Hún er yndislegust, bestust, flottust og fínust c",)

Innskráningar kubbur

Afmælið mitt :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Og drengurinn heitir....

21. febrúar 2009 klukkan 22:02
... Jóhann Darri Kiss
Jóhann er í höfuðið á ömmu hans Gulla sem hét Jóhanna og Darri er útí loftið Cool

Jæja stutt í þetta skiptið! Lengra næst....

Og hvað á barnið að heita?

06. febrúar 2009 klukkan 21:01
Jæja, lífið gengur sinn vanagang hérna í Álfhólunum... En dagurinn er einhvernveginn svona: vakna, gefa, skipta, fara í sturtu, leggja sig, vakna, gefa, skipta osfrv Tongue out Þetta er svoooo gaman en náttlega erfitt inná milli þegar lítill maður grætur og grætur og mamman og pabbinn vita ekki af hverju Frown

Annars erum við á fullu að reyna að finna nafn á prinsinn en það eru komnar nokkrar fínar hugmyndir og núna erum við bara að velja það sem okkur líst best á Wink 

Jæja, ætla að fara að lesa fyrir prinsessuna...

Tjá Cool

Lítill prins mættur á svæðið :)

26. janúar 2009 klukkan 19:49
Hellú Cool

Jæja, þá er maður orðin 2ja barna móðir! Lítill prins leit dagsins ljós þann 22.janúar sl kl 23:28 Laughing Ótrúlega fallegur og með mikið rautt hár! Jább, rautt hár... hver hefði trúað því? híhí
Hann var 3945gr og 53cm. Rúmlega kíló þyngri en stóra systir sín og 4cm stærri Wink

Fæðingin gekk mjög hratt fyrir sig en ég var komin uppá deild um 21:00, fór aðeins heim aftur og mætti svo um 22:00 og þá komin með 6 í útvíkkun.  Klukkutíma seinna var ég komin með 8 og 28mín seinna var prinsinn mættur!
Við komum svo heim í gær og erum svona að læra svolítið á hvert annað. Mamman er í miklu uppáhaldi hjá guttanum og grætur bara hraustlega ef brjóstagjöfin gengur ekki smurt Wink Pabbinn er að komast í náðirnar hjá honum og stóra systir er bara duglegust að aðstoða okkur með litla kallinn.  Henni finnst ekki leiðinlegt að henda bleyjum, klappa honum og setja teppi/sæng yfir hann. Hún er bara flottust Kiss

Jæja, nóg í bili Smile

Knús á línuna frá okkur öllum í Álfhólum 19

Læt eina mynd af gullmolunum fylgja Kiss

Settur dagur í dag

19. janúar 2009 klukkan 14:12
Og bara ekkert að gerast Tongue out

Þetta er s.s mín lengsta meðganga til þessa en sú fyrsta lauk á 21 viku, næsta á 38 viku og þessi ætlar að ljúka bara einhverntímann á næstunni Wink Gaman að því...

Jæja, vildi bara láta ykkur vita að það væri ekkert að gerast ennþá....

Kv, Anna Heiður

Ennþá kona eigi einsömul!

07. janúar 2009 klukkan 18:59
Jamm og jæja.. Ég er ennþá ófrísk og stefni að því að vera það eitthvað áfram miðað við að það er bara EKKERT að gerast eins og er Tongue out En ég er nú ekki sett fyrr en þann 19 þannig að ég er sko alveg róleg Wink Og ótrúlegt en satt þá er ég ekkert farin að bíða heldur bara að njóta þessa síðustu daga sem móðir einnar 5 ára prinsessu og eiginkona besta manns í öllum heiminum Laughing 

Fór reyndar að fá verki aðfaranótt föstudagsins sl. og komu þeir á ca 3ja mín fresti frá 02:30 til ca 4:50 en þá hætti ég að taka tímann á milli enda farið að líða lengra á milli verkja... Þeir s.s. duttu bara niður og hafa ekkert komið síðan Yell Láta mann vaka í rúma 2 tíma fyrir ekki neitt.. hnuss barasta...  hehe

En þetta er s.s mín lengsta meðganga til þessa.. fyrsta meðganga lauk eftir 21 viku, næsta á 38 viku og núna er ég komin 38 vikur + 1 dag þannig að þetta verður mín lengsta meðganga Wink Sem er sko allt í góðu mín vegna en veit ekki alveg með systur mínar tvær sem geta hreinlega ekki beðið eftir krílinu!!! hehe

Ég fór með mömmu í bæinn á laugardaginn sl og þar sem ég er nú þekkt fyrir að vera OFURskipulögð *hóst* þá kauptaði ég allar afmælisgjafirnar fyrir janúarmánuð Cool enda gefum við hvorki meira né minna en 5 afmælisgjafir (Theodór, Binni, Róbert, Bjarki og Alexander) og plús náttlega gjöf handa Gulla mínum Wink  Þannig að núna á ég bara eftir að pakka þeim inn og skrifa á kortin.. Næææææssss...

Jæja, daman vill fara í Doppuleikinn sinn Kiss 

Heyrumst og sjáumst... kannski bara verð ég kona einsömul næst... hver veit Tongue out

Gleðilegt ár :)

01. janúar 2009 klukkan 19:07
Hæhæ, og gleðilegt ár (þessir sem lesa og kvitta aldrei/sjaldan Tongue out)

Jæja, ég náði að halda í mér yfir áramótin þannig að allir geta andað léttar Wink hehe....
Við áttum alveg yndisleg áramót hjá mömmu og pabba en þangað mættum við, Tröllhólagengið, Harpa, Bjössi og náttlega gamla settið!  Það var mikið hlegið, drukkið og etið en það barst eitthvað í tal að reyna hafa hláturgusur í lágmarki fram yfir miðnætti svo ég myndi nú bara ekki missa vatnið og eiga korter fyrir áramótin Tongue out En þetta var nú allt í góðu og ég náði nú BARA að gráta einu sinni úr hlátri þegar Harpa tók svona pirringsdans á gólfinu v/ ég og Bjössi gátum ekki verið eðlileg á EINNI mynd Cool hehe

Annars leist mér nú ekkert á blikuna í hádeginu í dag...  eða þetta byrjaði reyndar í gær.... fékk þvílíkar sjóntruflanir uppúr hádeginu í gær (svona eins og ég hefði horft of lengi í sól) en svo leið það bara hjá og ég var ekkert að hugsa um það frekar. Svo var ég eitthvað að stússast inní eldhúsi, fá mér að borða og sonna, þegar þetta byrjaði aftur (gat ekki einu sinni lesið það sem stóð á tölvuskjánum) þannig að ég ákvað að hringja uppá heilsugæslu og vildi hjúkkan fá mig í smá tékk. Ég og Gulli brunuðum þangað og var ég sett í mónitor í ca 30mín og kom allt rosa fínt útur því, hjartslátturinn hjá krílinu var 160-180 (frekar stelpulegur Wink) og mikið af óreglulegum samdráttum sem er kannski ekkert nýjar fréttir.... og svo tók hún blóðþrýstingin sem kom bara svona lala út!  Aðeins í hærri kantinum sem gæti skýrt þessar sjóntruflanir þannig að ég á bara að reyna hvíla mig extra mikið svona síðustu metrana Smile  En hún sagði við mig að ég gæti alveg verið að fara af stað miðað við samdrættina en svo gæti þetta líka bara verið smá svona fyrirvaraverkir... Spennandiiiiiiiiii Laughing

Jæja, nóg í bili.. Munið að kvitta Kiss

Kv, ég og bumbuz

Jæjaaaaa!!!

22. desember 2008 klukkan 09:47
Ég er öll að koma til eftir áreksturinn, vinstra brjóstið orðið fagurgrænt og verkurinn undir bumbinni ekki lengur til staðar! Tongue out En hitt er svo annað mál.... er alltaf með samdrætti og grindin versnaði til helminga eftir áreksturinn Undecided Ég sef orðið lítið sem ekkert v/ ég þarf alltaf að vera snúa mér en ég er búin að finna það út að mér líður best á maganum með aðra löppina ofan á Gulla..... En þar sem maður er eigi kona einsömul þá gengur það nú ekki nema í ca 10mín, þá fer allt á fullt í mótmælaaðgerðum Innocent Þannig að þið getið nú rétt ímyndað ykkur hvernig nóttin gengur fyrir sig hjá mér Wink

Annars er bara allt að verða reddí fyrir jólin hjá okkur... bara eftir að skreyta jólatréð og pakka inn einni jólagjöf Cool Við hjónakornin tókum húsið í gegn í gær og erum ekkert lítið ánægð með okkur og svo er stefnan tekin á að kippa jólatrénu uppúr kassanum og skreyta í kvöld Smile 
Prinsessugullið okkar er náttlega alveg að missa sig í spenningi yfir jólunum og byrjar daginn alltaf á því að breyta dagatalinu þannig að hún sjái hvað margir dagar eru til jóla. Hún hefur ekki ennþá fengið kartöflu í skóinn enda með eindæmum þægt barn Innocent já, eða svona oftast Wink

Áslaug sys er búin að sækja vögguna til Guggu ömmu en hún treystir því ekki að ég nái að halda í mér fram yfir áramótin! Enda er ég orðin mjög þreytt og ALLTAF með verki Foot in mouth Hvað haldi þið?? Kemur þetta á þessu ári eða kannski bara á því næsta??

Ljósan sagði víst við Áslaugu þegar hún gekk með Theodór að strákar væru meira í því að stríða mömmum sínum þannig að kannski hefur stóra sys bara rétt fyrir sér en hún er búin að halda því fram frá getnaði (eða svona næstum því) að þetta sé strákur Wink 
Væri nú alveg týbíst fyrir mig að vera með þvílíka verki og náttlega búast við því að barnið kæmi á hverri stundu en svo myndi ég ganga 2 vikur fram yfir og fæði 20marka barn!! Væri það ekki soldið ég Wink híhí

Jæja, ætla að skutlast til sjúkraþjálfarans og svo í mæðraskoðun...

Sjáumst og heyrumst..

Kv, ég Tongue out

Ýmislegt ;)

15. desember 2008 klukkan 07:46
Já góðan daginn... mín bara vöknuð, búin að fara í sturtu og er byrjuð að blogga Cool  Er að bíða eftir því að prinsessan vakni svo ég geti farið með hana í leikskólann en ég er hætt að vinna eftir smá óhapp sem gerðist á laugardagskvöldið Foot in mouth
Ég fór á æðislega tónleika með Frostrósum á laugardaginn kl 16:00 en Inga tengdamamma bauð mér, Freyju, Jónu og Hrefnu á þessa tónleika. Eftir tónleikana ætluðum við að fara fá okkur aðeins að borða og fór ég í bíl með Freyju (á hennar bíl) og Jónu og var stefnan tekin á Gallerý Fisk. Þegar við erum að keyra framhjá Glæsibæ, frá Laugardalshöllinni, stoppum við á ljósum og erum að bíða eftir því að komast yfir þegar við vorum svo óheppnar að lenda í árekstri!! Ég sat aftur í, fyrir aftan Freyju og bíllinn sem keyrði á okkur lendir á hægri hliðinni á Freyju bíl, s.s. fyrir aftan Jónu sem sat framí (skilji þið þetta? Wink)  Höggið var svakalegt enda náði strákurinn ekki að bremsa, stoppaði bara á Freyjunni! Hann gaf nebblega aðeins í til þess að ná því að komast yfir ljósin áður en það kom rautt og við sáum hann bara ekki, engin af okkur, og ætluðum þess vegna að fara bara af stað... Úffff, okkur brá ekkert lítið og mér brá ekkert minni þegar ég fattaði að öryggisbeltið skarst alveg inní bumbuna Cry Þannig að Jóna hringdi á sjúkrabíl og ég var flutt uppá fæðingardeild hið snarasta, enda fann ég engar hreyfingar né spörk og var orðin drulluhrædd....  Sem betur fer róaðist ég fljótlega þegar ég kom í sjúkrabílinn en fann ennþá engin spörk eða hreyfingar og var farin að fá samdrætti í þokkabót Yell Það var ekki fyrr en ég kom uppá fæðingardeild og heyrði hjartsláttinn að ég fann loksins smá brölt hjá krílinu! Þarna var ég byrjuð að fá samdrætti á 3ja mínútna fresti mátti ég náttlega ekki fara heim strax og var því í mónitor til miðnættis til að fylgjast með öllu.  Gulli kom í bæinn og var hjá mér þangað til ég fékk grænt ljós að fara heim en með því skilyrði að ég YRÐI að taka það rólega, hætta að vinna og reyna að hugsa um eitthvað annað.  Samdrættirnir duttu niður um 11 leytið enda þá var ég farin að slaka á og ekki nærri því eins hrædd eins og strax eftir áreksturinn.
Bíllinn hennar Freyju er nú frekar mikið skemmdur á hægri hliðinni, enda mikið högg, en því miður erum við líklegast í órétti Frown En það er fyrir öllu að engin meiddist!!
Ég er öll að koma til eftir þetta óhapp en ég er ennþá með smá samdrætti og er öll að stífna upp í hálsinum (enda skall ég uppí toppinn á bílnum við höggið!!) og er byrjuð að fá mar á brjóstið og magann eftir beltið. En sem betur fer var ég með beltið undir bumbunni en ekki yfir hana og er því mest aum þar, eiginlega bara alveg að drepast þar, hehe.....

Núh svo er ég búin að fara í vaxtarsónarinn og er krílið orðið ca 2700gr Tongue out Og bara svo þið vitið það þá fæddist Kolbrún Birna 2890gr þannig að það stefnir allt í að þetta kríli verði aðeins stærri en hún Innocent híhí

Jæja, nóg í bili...
Ég skrifa fljótlega eitthvað meira.. prinsessan vöknuð og búin að kíkja í skóinn þannig að núna förum við að tíja okkur í leikskólann Wink

Bæbæ,
Anna Heiður

Skoðun, endurskoðun, bílakaup oflofl...

05. desember 2008 klukkan 11:01
Jamm, mín fór í skoðun á þriðjudaginn og allt kom svona lala út hjá mér Undecided
Blóðþrýstingurinn í hærra lagi, prótein í þvagi, grindarverkir og mikil þreyta að plaga mig EEENNNN allt annað gott.. Ekkert þyngst á 3 vikum Tongue out og engin bjúg ennþá þannig að ég er mjög sátt...
Er búin að fá leyfi til að hætta 19.des hérna hjá Vís og verð að segja að mig hlakkar nú pínu til þess að hætta.. Er orðin svooooo þreytt enda sef ég lítið sem ekkert á nóttunni.. næ e-h ekki að hvílast nóg útaf grindinni sem er orðin MJÖG slæm Yell 
Já og svo fæ ég að fara í vaxtasónar í næstu viku v/ henni fannst hún ekki ná að þreifa nógu vel á barninu.. hélt kannski að ég væri með svona mikið legvatn.. og svo er það búið að skorða sig þannig að það er bara tilbúið að koma í heiminn (já eða svona næstum því.. hehe).  Er einmitt búin að bjóða Hörpu sys að koma með v/ hún er búin að tala um það svooo lengi að henni langi að sjá hvernig krílið lítur út í svona sónar Wink Þannig að ég greip tækifærið þarna og ákvað að bjóða henni með... Cool

Æi mig langaði svo mikið að hafa Kolbrúnu Birnu bara heima yfir hátíðarnar og sem betur fer get ég það úr þessu Smile  Ætla dekstra aðeins við hana áður en krílið kemur.. Eiga svona mæðgnadag Wink  Hún er búin að vera soldið vælin síðustu daga og ég fékk hana til að kúra aðeins hjá mér uppí sófa á miðvikudaginn og spurði hana af hverju hún væri að væla svona, hvort henni liði illa einhversstaðar og þá svaraði hún: Já, hérna (og bendir á hjartað Frown)!! Ég fékk alveg sting í mitt hjarta og ákvað að leyfa henni að vera heima alla hátíðina með mér og vonandi Gulla líka.....  En annars er hún alveg yndisleg.. Búin að föndra þessa fínu jólagjafir handa ömmum sínum og öfum Wink og svo ætla ég að fá hana til að hjálpa mér að pakka þessu inn... Ekki leiðinlegt sko...

Heyrðu já og svo erum við búin að versla okkur bíl! Eigum að skila Skoda 3ja janúar og duttum niður á þennan fína bíl... Mitsubishi Pajero 2001 árg... mjög vel með farinn að innan en náttlega smá lakkskemmdir að utan, sem er eðlilegt fyrir 2001 árg. af bifr Wink  Gulli ætlar nú kannski að ditta aðeins að gripnum svona við betra tækifæri.. En við erum svakalega sátt með hann...

Jæja held bara að ekkert meira sé í fréttum... Endilega munið svo að kvitta fyrir komuna Tongue out

Kv, Ég......

Jólin nálgast eins og óð fluga!!!

01. desember 2008 klukkan 10:33
Jamm ekki nema 23 dagar í blessuð jólin og allt að verða kreiiiiiiisíííííí Tongue out
* Er byrjuð að versla jólagjafirnar og barasta langt komið með þær Wink 
* Búin að gera aðventukransinn og verð nú bara aðeins að monta mig og segja að hann heppnaðist bara nokkuð vel hjá mér Laughing  Set mynd inn seinna...
* Laufabrauðsgerðin er búin en við gerðum þetta á laugardaginn heima hjá ma og pa.. Svooo gaman, ljúft og yndislegt.... Núna geta jólin komið Smile
* Er byrjuð að skreyta heima og er langt komið með það.. bara smá eftir + jólatréð Wink En ég hef ákveðið að vera bara hógvær í ár og skreyta bara lítið.. enda leyfir grindin mér ekki að gera það sem ég vil *hnuss*

Jæja annars voðalega lítið í fréttum eitthvað....

Bið að heilsa!!

ps. gleymdi náttlega alveg aðalatriðinu!!! Daman er komin með göt í eyrun Wink Og ekkert lítið sátt við það skohhh....  Set mynd af skutlunni við tækifæri.. kannski bara um leið og myndin af aðventukransinum kemur...